Velkomin á faggreinar.is

Iðnnám í matvælgreinum er samningsbundið iðnnám sem tekur ýmist þrjú eða fjögur ár. Námið fer fram í skóla og á vinnustað og þurfa nemendur að vera komnir á námssamning áður en þeir hefja nám í skóla.

Meginmarkmið iðnnáms í matvælagreinum er að nemendur hljóti nauðsynlega, almenna og faglega menntun til að takast á við þau störf sem tilheyra greinunum.

Nemendur öðlast þekkingu á hráefni, vélum, tækjum og öðrum búnaði ásamt þeim hreinlætiskröfum sem gerðar eru í matvælagreinum.

Að loknu námi í skóla og á starfsþjálfunarstað hafa nemendur öðlast víðtæka innsýn í helstu störf greinanna, tileinkað sér helstu verkþætti og þjálfast í sjálfstæðum vinnubrögðum og samstarfi við aðra.